Áríðandi

Þriðjudaginn 7. október klukkan 15:00 mun irc.simnet.is fara niður vegna viðhalds.
Undanfarna daga hefur vélin keyrt með alvarlegar vélbúnaðarbilanir. Framleiðandi vélbúnaðarins telur bilunina það alvarlega að við fáum splunkunýja, alveg eins vél í staðinn.
Svo það sem við munum gera kl 15:00 á mánudag er að flytja diskana og RAID stýringuna úr gamla í þá nýju og gangsetja svo þjónustuna aftur. Við munum einnig nota tækifærið til þess að setja inn þær uppfærslur á FreeBSD stýrikerfið, sem hún keyrir sem ekki hefur verið hægt að setja inn án þess að endurræsa hana.
Við reiknum með að þessi aðgerð taki ekki lengri tíma en 30 mínútur.

Við ítrekum samt að þeir sem eru ábyrgir fyrir rekstri rása á IRC ættu að grípa til viðeigandi ráðstafana á mánudag til að tryggja að ekki verði vandamál á rásunum.

Ég veit að við tökum öll ofan fyrir gömlu vélinni og þökkum henni fyrir hversu vel hún hefur staðið sig, sérstaklega eftir að hún bilaði :)

Fyrir hönd stjórnenda irc.simnet.is biðst ég velvirðingar á þeim vandræðum sem þetta mun hafa í för með sér.